Litur: Star White.
Spangarlaus Beauty Back® brjóstahaldari fyrir fyllri barm. Létt fóðraðar, mótaðar skálar gefa góða þekju og stuðning, og mjúkt efnið sléttir yfir hliðar og bak svo línan verður falleg og jöfn.
- Sléttir yfir hliðar og bak – engar bungur eða línur.
- Létt fóðraðar, saumlausar skálar.
- Spangarlaus stuðningur sem aðskilur og styður.
- Bólstraðir hlýrar sem sitja þéttar saman að aftan og renna ekki af.
- Krækjur að aftan, 3–4 krækjur á hæð eftir stærð.
Efni: Bak: 80% pólýester, 20% spandex · skálar: 78% nylon, 22% spandex.
Umhirða: Handþvottur í köldu vatni, aðskilið frá öðrum litum. Notið ekki klórbleikju, látið þorna á snúru og straujið ekki.
Stærðir eru bandarískar: evrópsk stærð 80C er 36C hér, 85 = 38 og 90 = 40, og skál E = DD og F = DDD. Umreiknivélin á síðunni Stærðaraðstoð hjálpar þér að finna rétta stærð og við aðstoðum gjarnan á ynja@ynja.is.
STYLE NO: 71380


